10.10.2008 | 00:11
Rosalegasvakalegaótrúlegafáheyrt
það sem er í gangi þessa daga. Svo virðist sem röð tilviljanna og óhappa sé að ganga að íslensku efnahagslífi dauðu. Sennilega er fjármálaráðherrann virkilega lélegur í ensku á yfirvegaðann hátt. Allaveganna eru Bretar við það að lýsa stríði á hendur okkur Íslendingum. Bankarnir búnir að mjólka sparifjáreigendur og sveitarfélög í UK.
Það eiga eftir að líða mörg ár þangað til ég voga mér að fara í sumarfrí til vesturlanda, get huggað mig við að kannski verði Rússar okkar nýasti og bestasti vinur. Allaveganna er ég að spá í að kynna mér núna sögu og menningu þeirra svo ég standi betur að vígi í sumarfríum mínum þar úti.
En hvað er að gerast hér? Sagt er að skútan sé í ólgusjó og fárviðri. Fílar séu komnir inn í Tékk-Krystal. Óreiðumenn búnir að blása upp blöðru sem sprakk og trúðar að reyna grípa innihald hennar.
En ég er ekki svartsýnn, er límdur við fréttamiðla netsins, með útvarpið kveikt og sjónvarpið á fullu. Þetta er sennilega besti tíminn til þess að vera atvinnulaus, get allaveganna fylgst með. Ég er sennilega búinn að lesa meira á þessum dögum en alla ævi. Íslensku, ensku og meira segja dönsku.
Ég að lokum tek undir með honum Villa, IMF til Íslands, held það sé sennilega besta lausnin.
En lengi lifi Ísland...
Vill fá aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.